Fjölmenni á framhaldsskólakynningu FÁ
Fjölmenni lagði leið sína á framhaldsskólakynninguna í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þann 17. mars. Kynningin var haldin fyrir nemendur grunnskólanna sem hefja nám í framhaldsskóla næsta haust.
Flestir fóru á milli fulltrúa skólanna, fræddust, spurðu og fengu bæklinga til að taka með sér heim. Þeir Gústav úr Langholtsskóla og Aron Dagur og Þorgeir Bragi úr Laugalækjarskóla voru á kynningunni. Þeir voru ánægðir með framtakið, fannst kostur að geta komið á einn stað og fengið fræðslu og kynningu á námi og námsleiðum framhaldsskólanna. Alls voru 13 framhaldsskólar af höfuðborgarsvæðinu með kynningu þennan dag.