English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Umhverfisnefnd elstu barnanna í leikskólanum Heiðarborg í Seláshverfi fundaði með borgarstjóra í morgun og kynnti honum hvernig börnin gæta umhverfisins alla daga.
Elstu börnin í Heiðarborg skipta með sér verkum í umhverfisstarfinu, en leikskólinn hefur tvisvar sinnum fengið viðurkenninguna Grænfánann fyrir það starf. Börnin skipta með sér verkum og eru ljósaverðir, vatnsverðir, skógarverðir og flokkunarverðir á víxl og sjá þá t.d. til þess að spara rafmagnskostnað skólans og flokka og endurnýta ýmislegt rusl sem til fellur.
Á fundinum í morgun sögðu börnin borgarstjóra frá því hvernig þau njóta náttúrunnar og umhverfisins í Seláshverfinu en þar er umhverfismennt mjög í hávegum höfð og samstarf á milli leikskóla og grunnskóla í útinámi og umhverfismenntuninni. Meðal annars er Heiðarborg í samstarfi við Blásali, Rauðaborg og Selásskóla með grenndarsvæði sem kallast Heimahagar.
Borgarstjóri kom einnig færandi hendi í Heiðarborg og sýndi börnunum teikningu af fyrirhugaðri endurgerð leikskólalóðarinnar, en framkvæmdir við hana hefjast nú í sumar. Börnin höfðu áður komið á fund borgarstjóra og greint honum frá því að þau vildu fá klifurtæki á lóðina og undirlag undir trén. Í kjölfarið var kastala leikskólans breytt og sett klifuraðstaða á hann.
Óhætt er að segja að fundur umhverfisnefndar Heiðarborgar hafi verið líflegur og fróðlegur fyrir alla fundargesti enda mikilvæg hagsmunamál á dagskrá. Í nefndinni sitja elstu börn leikskólans, fulltrúar starfsfólks og fulltrúar foreldra. Heiðarborg tekur einnig þátt í verkefninu Grænum skrefum hjá Reykjavíkurborg.