English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Hrint hefur verið af stað þjóðarátaki um söfnun á skjölum kvenna. Að átakinu standa Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Þjóðskjalasafn Íslands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur ásamt héraðsskjalasöfnum um land allt.
Því miður er það staðreynd að skjöl kvenna skila sér síður inn á söfnin en skjöl karla og þykir söfnunum því tilhlýðilegt að fagna 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna með því að minna á mikilvægi þessara gagna og hvetja landsmenn til að stuðla að varðveislu þeirra með því að koma þeim í örugga geymslu.
Með skjölum er átt við bréf, dagbækur, handskrifaðar matreiðslubækur, póstkort, teikningar, ljósmyndir, kvæði, smásögur og ýmsan fróðleik sem vert er að halda upp á ásamt handritum sem voru í eigu kvenna. Slík skjöl geta veitt innsýn inn í líf einstaklinga og fjölskyldna þeirra en einnig varpa þau ljósi á sögu lands og þjóðar.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur tekur til varðveislu skjöl einstaklinga á öllum aldri, af öllum stéttum. Ef þið hafið skjöl sem gætu átt erindi á safnið, vinsamlegast hafið samband með því að senda hér skilaboð, senda tölvupóst á borgarskjalasafn@reykjavik.is eða hafa samband í síma 411 6060.