Breiðhyltingar vilja laga stíga og gróðursetja tré

Betri hverfi

""

Íbúar í Breiðholti leggja til hugmyndir fyrir 70 milljónir í hverfakosningunum Betri hverfi 2015. Þeir leggja til að stígurinn milli Fella- og Hólahverfis verði lagfærður, að kröpp beygja á göngustíg á horni Núpabakka og Arnarbakka verði lagfærð og einnig stígar í Seljahverfi.

Aðrar hugmyndir sem lagðar eru fram í Breiðholti er m.a. að fegra borgarlandið umhverfis Mjóddina, gróðursetja tré á lóðinni að Hólabergi 84 og setja upp ungbarnarólur á róluvöllum í Breiðholti. Þetta eru einungis sex af tuttugu verkefnum sem íbúar geta kosið um í Betra hverfi 2015.

Þau tuttugu verkefni sem kosið verður um eru metin á 70 milljónir króna en til framkvæmda eru rúmlega 46 milljónir króna í hverfapotti Breiðholts.

Rafrænar íbúakosningar um verkefni í hverfum borgarinnar hefjast  þriðjudaginn 17. febrúar í næstu viku og standa yfir til miðnættis þriðjudaginn 24. febrúar. Til að kjósa þarf að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða Íslykli og kemst þá kjósandinn inn í rafrænan kjörklefa. Kerfið er afar einfalt í notkun. Aldurstakmark í kosningunum er 16 ár.

Sjá verkefni í Breiðholti.