Kjalnesingar vilja leiktæki við Esjugrund

Betri hverfi

""

Íbúar á Kjalarnesi leggja til hugmyndir fyrir rúmar 32 milljónir í hverfakosningunum Betri hverfi 2015. Meðal verkefna er Langstökksgryfja í hverfið, apa- og hreiðurrólu á leiksvæðið við Esjugrund.
Einnig er lagt til að setja upp fræðsluskilti um Kjalarnes og gróðursetja tré. Þetta eru einungis fimm af þrettán verkefnum sem íbúar geta kosið um í Betri hverfi 2015.

Þau þrettán verkefni sem kosið verður um eru metin á rúmar 72 milljónir króna en til framkvæmda eru 9 milljónir króna í verkefni á Kjalarnesi.

Rafrænar íbúakosningar um verkefni í hverfum borgarinnar hefjast  þriðjudaginn 17. febrúar í næstu viku og standa yfir til miðnættis þriðjudaginn 24. febrúar. Til að kjósa þarf að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða Íslykli og kemst þá kjósandinn inn í rafrænan kjörklefa. Kerfið er afar einfalt í notkun. Aldurstakmark í kosningunum er 16 ár.

Sjá verkefni á Kjalarnesi.