English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Íbúar í Árbæ leggja til hugmyndir fyrir 89 milljónir í hverfakosningunum Betri hverfi 2015. Þar á meðal malarstíg við Rauðavatn, Lýsa stíg frá Elliðaám að Streng og Vatnsbrunn í Elliðaárdal við rafstöð
Einnig lýsa leiksvæði barna við Hólmavað, færa leikvöllinn á milli Silakvíslar og Álafkvíslar og setja upp hraðahindrun við þverun Elliðabrautar að Björnslundi. Þetta eru einungis sex af sautján verkefnum sem íbúar geta kosið um í Betra hverfi 2015.
Þau sautján verkefni sem kosið verður um eru metin á 89 milljónir króna en til framkvæmda eru rúmlega 27 milljón króna í hverfapotti Árbæjar.
Rafrænar íbúakosningar um verkefni í hverfum borgarinnar hefjast þriðjudaginn 17. febrúar í næstu viku og standa yfir til miðnættis þriðjudaginn 24. febrúar. Til að kjósa þarf að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða íslykli og kemst þá kjósandinn inn í rafrænan kjörklefa. Kerfið er afar einfalt í notkun. Aldurstakmark í kosningunum er 16 ár.