Breytingar hjá þjónustumiðstöðvum Laugardals og Háaleitis og Miðborgar og Hlíða
Breytingar hjá framkvæmdastjórum þjónustumiðstöðva Laugardals og Háaleitis, Miðborgar og Hlíða auk Vesturbæjar.
Þær breytingar hafa verið gerðar hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar að Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis, tekur að sér tímabundið verkefni á skrifstofu velferðarsviðs, sem standa mun í eitt ár.
Jafnframt hefur verið ákveðið að Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, taki við starfi framkvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis til sama tíma. Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvarinnar Vesturgarðs mun samhliða því starfi sinna starfi framkvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða á þessu tímabili.
Breytingarnar taka gildi 15. febrúar nk. og eru hugsaðar til eins árs.