Sandur og salt fyrir íbúa

Umhverfi Framkvæmdir

""

Eins og undanfarin ár eiga íbúar þess kost að sækja sér salt og sand á hverfastöðvar og verkbækistöðvar Reykjavíkurborgar til að bæta öryggi á gönguleiðum í sínu nágrenni og heimkeyrslum. 

Salt og sandur er aðgengilegur fyrir íbúa á eftirfarandi stöðum:

  • Hverfastöðinni við Njarðargötu,      
  • Hverfastöðinni í Jafnaseli,
  • Hverfastöðinni á Kjalarnesi,
  • Verkbækistöðinni við Árbæjarblett og 
  • Verkbækistöðinni á Klambratúni við Flókagötu.

Hverfastöðvarnar eru opnar mánudaga til fimmtudaga kl. 7:30 - 17:00 og föstudaga kl. 7:30 -15:25, en verkbækistöðvarnar eru opnar kl. 7:30 - 17:25 mánudaga til miðvikudaga og kl. 7:30 - 15:25 á fimmtudögum og föstudögum.

Íbúar eru hvattir til að hafa með sér ílát en einnig er mögulegt að fá poka á staðnum til að moka í.  Skóflur eru við sand- og salthrúgurnar á ofantöldum stöðum.

Nánari upplýsingar um snjóhreinsun og hálkuvarnir.