Jólamarkaður í Sjóminjasafninu

""

Sunnudaginn 16. nóvember verður slegið upp handverksmarkaði með sannkölluðu jólaívafi á Sjóminjasafninu í Reykjavík, Grandagarði 8, milli klukkan 10-17.

Markaðurinn opnar klukkan tíu og kennir ýmissa grasa. Á boðstólum verður fjölbreytt og fallegt íslenskt handverk sem er tilvalið í jólapakkann eða bara til þess að gleðja sjálfan sig. Heitt verður á könnunni á kaffihúsinu Víkinni og boðið upp á heimabakað bakkelsi að vanda.

Það verður sannkölluð jólastemmning niður við sjó þar sem gestir á öllum aldri geta komist í jólaskap.

Næg bílastæði en vinsamlegast athugið að ekki verða allir söluaðilar með posa.

Safnið verður að sjálfsögðu opið.