Sjósund ekki ráðlagt á Kjalarnesi

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur mælt hækkuð gildi á saurgerlum í sjónum neðan við Klébergsskóla og í Bergvíkurlæk á Kjalarnesi.  Heilbrigðiseftirlitið leitar nú uppruna mengunarinnar og mælir ekki með sjósundi eða leik í læknum fyrr en búið er að koma í veg fyrir mengunina.