Skólamót Fjölnis í handbolta

""

Laugardaginn 20. september heldur handknattleiksdeild Fjölnis skólamót fyrir grunnskóla Grafarvogs. Keppni verður milli skóla í árgöngum frá 1. - 8. bekk. Nóg að mæta á staðinn, raðað verður í lið á staðnum.

Mótið verður haldið í Dalhúsum 2 á laugardag.

1.-2. bekkur mætir kl. 08:45 - mótið hefst kl. 09:00 og stendur til kl. 10:30.

7.-8. bekkur mætir kl. 10:00 - mótið hefst kl. 10:30 og stendur til kl. 12:00.

3.-4. bekkur mætir kl. 11:30 - mótið hefst kl. 12:00 og stendur til kl. 13:30.

5.-6. bekkur mætir kl. 13:00 - mótið hefst kl. 13:30 og stendur til kl. 15:00.

Allir velkomnir!