Á Galdraslóð í Kelduskóla

Skóli og frístund

""

Eitt af frístundaheimilum Gufunesbæjar, sem áður hét Vík og staðsett er í Kelduskóla-Vík, hefur nú fengið nýtt nafn og heitir Galdraslóð. 

Á vorönn var haldin nafnasamkeppni meðal barnanna á frístundaheimilinu. Nokkrar tillögur bárust og kusu börnin á milli þeirra og varð niðurstaðan þetta skemmtilega og margræða heiti. Þeim og starfsfólkinu í Galdraslóð er óskað til hamingju með nýja nafnið á frístundaheimilinu.