Þrjár glæsilegar sýningar opnaðar í Hafnarhúsi
Þrjár glæsilegar sýningar verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 6. sept. kl. 16. Þetta eru sýningarnar Erró og listasagan, Ásdís Sif Gunnarsdóttir: Skipbrot úr framtíðinni /Sjónvarp úr fortíðinni og sýning listamannanna Mojoko og Shang Liang: Gagnvirkur veggur. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar sýningarnar.
Við sama tækifæri afhendir Erró verðlaunafé og viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur til listakonu sem þykir skara fram úr. Sjóðinn stofnaði Erró til minningar um frænku sína Guðmundu og er honum ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna.
Á sýningunni Erró og listasagan má sjá verk þar sem Erró fær að láni myndir og myndbrot úr verkum eftir marga þekktustu listamenn sögunnar líkt og Picasso og Léger. Enn fremur hefur hann tilvísanir í verk minna þekktra listamanna frá ólíkum skeiðum sögunnar. Með þessum hætti má segja að Erró skrifi sína eigin útgáfu af listasögunni í verkum sínum. Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.
Ásdís Sif Gunnarsdóttir vinnur með gjörninga í vídeóverkum sínum sem fara fram með mismunandi hætti á ólíkum stöðum í tíma og rúmi. Verkið Skipbrot úr framtíðinni/ Sjónvarp úr fortíðinni er stór vídeóinnsetning sem byggir á fjölda vídeóverka þar sem frásögnin er óhefðbundin og fram koma augnablik frá fortíð og framtíð. Ásdís Sif kannar möguleika vídeómiðilsins til að búa til hrynjanda og flæði og dregur fram lifandi mynd af fortíð og framtíð. Þessi skörun tímans vísar til bíómynda sem gerast í framtíðinni þar sem töfrandi persónur birtast á dularfullum stöðum eins og löngu gleymd minningarbrot.
Verkið Gagnvirkur veggur eftir listamennina Mojoko & Shang Liang er gagnvirkt listaverk samsett úr 200 myndum frá popplist og dægurmenningu Asíu og Vesturlanda. Mojoko gerði grafíkina en Shang Liang sá um forritunina. Hljóðnemi er tengdur í verkið og geta sýningargestir talað, blístrað eða kallað í hann og myndirnar í verkinu breytast eftir hljómi eða hljóðstyrk. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um verkið.
Veggmynd eftir Erró verður afhjúpuð að Álftahólum í Breiðholti sama dag kl. 14. Allir velkomnir.