English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Næsti fræðsluviðburður Reykjavík - iðandi af lífi er á fimmtudaginn kl. 13.
Margir hafa áhuga á að skoða plöntur og dýr í sínu nánasta umhverfi enda er fjölbreytnin í náttúrunni mikil og oft á tíðum framandi. Það getur verið kúnst að greina lífverurnar til tegunda og þá er gott að tileinka sér greiningarlykla og handbækur. Fimmtudaginn 7. ágúst býður Reykjavík - iðandi af lífi upp á fræðsluviðburð þar sem viðfangsefnið er flokkun plantna og dýra og hvernig best er að greina til tegunda. Kynntar verða helstu handbækur og greiningarlyklar sem eru til á íslensku og síðan fá allir að spreyta sig við að greina nokkrar plöntutegundir – sumar einfaldar og aðrar meira krefjandi.
Hist verður í Fossvogi við innganginn að ræktunarstöðinni við Fossvogsveg kl. 13. Gestir eru kvattir til að taka með sér greiningarhandbækur. Umsjón með fræðslunni hefur Snorri Sigurðsson líffræðingur.
Sjá einnig www.facebook.com/reykjavikidandi