English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Nýr og tvíbreiður hjólastígur í Öskjuhlíð hefur verið tekinn í notkun.
Nýr tvíbreiður hjólastígur hefur verið tekinn í notkun í Öskjuhlíð. Stígurinn er við hlið göngustígs sem liggur frá Flugvallarvegi að bílastæðum Háskólans í Reykjavík. Hjólastígurinn er 2,5 metra breiður. Einfaldur áningarstaður hefur síðan verið gerður á stígamótum þar sem stígar frá Perlunni og Hótel Natura tengjast göngu- og hjólastígum. Sett var ný lýsing meðfram stígnum sem Orkuveita Reykjavíkur hannaði.
Nýi stígurinn er kærkomin viðbót við fjölbreytt net göngu- og hjólastíga í borginni og liggur að hluta til í gegnum fallegt skóglendið í Öskjuhlíð.