Fullt út úr dyrum á Stóra leikskóladeginum

Skóli og frístund Mannlíf

""

Fjölmenni hefur verið í Ráðhúsinu í dag en þar stendur yfir Stóri leikskóladagurinn. 

Áhugasamir leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna streymdi í Ráðhúsið þar sem hátt í fjörutíu leikskólar kynna margvísleg verkefni sem endurspegla kraft, sköpun og fjölbreytt nám yngstu borgarbúanna. 

Í Iðnó var fullt út úr dyrum á flestum fyrirlestrum en þar var m.s. fjallað um lýðræði og flæði í leikskólastarfi og þróun gæðastarfs með ungum börnum. Einnig var þar kynnt samstarfsverkefni leik- og grunnskóla á Selfossi, en leikskólar í Árborg eru gestir Reykjavíkur á Stóra leikskóladeginum. 

Stóri leikskóladagurinn er nú haldinn í sjötta sinn og hefur vaxið að umfangi ár frá ári. Á sýningunni í Ráðhúsinu má kynna sér mörg skemmtileg verkefni leikskólanna eins og samstarfsverkefni HEBA –skólanna sem unnið hafa með Jörðina á liðnum vetri. Einnig má skoða þar skemmtilega búninga sem börnin í Sunnuási hafa gert, leirsmíði barna í Jöklaborg, rannsóknarverkefni barna í Sæborg svo fátt eitt sé nefnt. Börn úr leikskólanum Hofi komu á sýninguna og sungu fyrir gesti og frá Maríuborg kom hópur barna og sýndi dans. 

Allir sem áhuga hafa á leikskólastarfi, barnauppeldi og menningu barna mega ættu ekki að láta Stóra leikskóladaginn fram hjá sér fara. 

Sjá auglýsingu með yfirliti yfir leikskóla og erindi á Stóra leikskóladeginum.