Stóri leikskóladagurinn 23. maí

Skóli og frístund

""

Föstudaginn 23. maí verður Stóri leikskóladagurinn haldinn í Ráðhúsinu og Iðnó. Leikskólar í borginni munu kunna margvígsleg verkefni úr fagstarfinu og flutt verða áhugaverð erindi.

Í Ráðhúsinu munu á fjórða tug leikskóla sýna metnaðarfull þróunarverkefni og annað starf sem vert er að miðla til fagfólks og almennings. Leikskólar sveitarfélagsins Árborgar eru gestir Reykjavíkur á Stóra leikskóladeginum og munu fimm leikskólar þaðan sýna verkefni úr fagstarfinu. Samhliða kynningum og sýningu verða sex fyrirlestrar haldnir í Iðnó, s.s. um lýðræði í leikskóla, leiklist og gæðastarf með ungum börnum.

Fyrirlestrar í Iðnó
Kl. 08:30-09:00 Ég keyri svona úúúúú ... komin í leikskólann. Rannsóknarvinna þar sem börnin unnu með heimili sitt, leikskólann og leiðina í leikskólann. Fyrirlesarar: Auður Ævarsdóttir og Móheiður Obel - Sæborg.

Kl. 09:00-09:30 Gullin í grenndinni - Samstarfsverkefni leik- og grunnskóla Selfossi. Fyrirlesarar: Anna Gína Aagestad og Ólafur Oddsson - Álfheimum í Árborg.

Kl. 10:30-11:00 Lýðræðisleg augnablik - Þróunarverkefni um lýðræðislega starfshætti í leikskólanum. Fyrirlesari: Kristín Eiríksdóttir - Árbær í Árborg.

Kl. 11:00-11:30 Flæði í leikskólastarfi - Gefin innsýn í leikskólastarf þar sem flæði samkvæmt kenningu Csikszentmihalyi er haft að leiðarljósi. Fyrirlesari: Sara Margrét Ólafsdóttir.

Kl. 13:00-13:45 Skína smástjörnur - Þróun gæðastarfs með ungum börnum í leikskólum í Reykjavík. Kynning á þróunarverkefni sem fengið hefur hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs. Fyrirlesarar: Kristín Gunnarsdóttir, Eva Hrund Egilsdóttir, Unnur Brynja Guðmundsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Sigrún Ósk Gunnarsdóttir og Ólöf Jóna Sigurjónsdóttir.

Kl. 13:45-14:30 Við viljum gefa börnunum þetta frelsi sem tjáningin er.  Fjallað um leiklist í leikskólastarfi. Fyrirlesari: Hildur L. Jónsdóttir - Laufskálum.

Sjá auglýsingu með yfirliti yfir leikskóla sem sýna verkefni sín og þau erindi sem flutt verða.

Myndband frá Stóra leikskóladeginum 2013.

Samtökin Skólaþróun, RannUng, Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda í leikskólum standa að Stóra leikskóladeginum ásamt Reykjavíkurborg.