Vorsýning í leikskólanum Jöklaborg

Skóli og frístund

""

Opið hús var í liðinni viku í leikskólanum Jöklaborg þar sem fjölskyldum gafst kostur á að skoða verkefni og vinnu barnanna á liðnum vetri. Sýningin verður áfram opin.

Skemmtileg sýning hefur verið sett upp í skólanum þar sem skoða má vinnuferli og listsköpun barnanna í Jöklaborg. Vikuna 12-16 maí verður sýningin öllum opin.
Allir áhugasamir um barnamenningu og starf leikskólans eru boðnir velkomnir.