Nýr leikskólastjóri í Hálsaskógi

Skóli og frístund

""

Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri í leikskólanum Hálsaskógi. Skóla- og frístundaráð afgreiddi ráðningu hennar á fundi sínum í dag. 

Friðbjörg Eyrún lauk námi í leikskólakennarafræðum við HA á árinu 2006 og útskrifast með meistarapróf í stjórnun menntastofnana frá HÍ nú í vor. Hún hefur starfað sem leikskólakennari og deildarstjóri í leikskóla á Akranesi.
Sex umsækjendur voru um stöðuna.