English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Handverkshópurinn Vinabandið heldur sýningu á bútasaumsteppum í félagsmiðstöðinni á Aflagranda 3. - 11. maí
Sýnd verða 14 bútasaumsteppi sem eru „sýnishornateppi“ og hafa verið í vinnslu og samstarfi hjá hópnum í tvö og hálft ár . Hvert teppi er 20 blokkir og hver blokk er unnin með sérstakri saumaaðferð. Sjón er sögu ríkari!
Sýningin er opin alla virka daga kl. 9 - 16 og laugardaga og sunnudaga kl. 13 - 17 á meðan á henni stendur.
Kaffistofan verður opin á ofangreindum tímum og allir eru velkomnir að koma í heimsókn, skoða sýninguna, setjast niður yfir kaffibolla og heimabökuðum kræsingum.