Sumardagurinn fyrsti í Grafarholti og Úlfarsárdal

""

Fimmtudaginn 24. apríl nk. verður haldin hátíð í Grafarholti og Úlfarsárdal eins og er við hæfi þegar sumardagurinn fyrsti gengur í garð.

Fimmtudaginn 24. apríl nk. verður haldin hátíð í Grafarholti og Úlfarsárdal eins og er við hæfi þegar sumardagurinn fyrsti gengur í garð.

Samkvæmt veðurspá verður gott veður í Grafarholti og Úlfarsárdal og spáin á vef veðurstofunnar (vedur.is) gerir ráð fyrir 8-9 stiga hita, smá sólarglennu um miðjan dag og 6 m/s! Óvenjulega gott veður miðað við fyrri ár! Það er samt engin ástæða til annars en að búa sig vel og drífa sig með börn og buru, gleymum ekki að taka ömmu og afa, frænda og frænku með á hátíðarhöldin sem hefjast strax um morguninn með Framhlaupinu og heldur svo áfram fram eftir degi.

Góða skemmtun Grafhyltingar og Úlfarsdælingar, njótum dagsins saman!

Gleðilega hátíð!

Dagskrá sumardagsins fyrsta í Grafarholti og Úlfarsárdal:

09:30 „Framhlaupið“ – skráning við Leirdalshús. Langi hringurinn 7,6 km. og stutti hringurinn 3 km.

10:00 „Framhlaupið“ ræst frá Leirdalshúsi.

11:00  Dýrablessun í Guðríðarkirkju.

12:30  Skrúðganga, með lúðrasveit Grafarvogs og Grafarholts í broddi fylkingar leggur af stað frá Sæmundarskóla.

12:50  Helgistund í Guðríðarkirkju.

13:30  Sumardagurinn fyrsti – skemmtun úti og inni.

  • Hoppkastalar.
  • Bingó á vegum 3. flokks knattpyrnudeildar Framkarla í Ingunnarskóla.
  • Veitingasala Fram – kaffi og kökur á góðu verði fyrir gesti og gangandi.
  • Bókamarkaður Guðríðarkirkju.
  • Kökubasar Leikskólakennara Maríuborgar.
  • Krítað á kirkjustétt.