Sumardagurinn fyrsti í Árbæ

""

Fimmtudaginn 24. apríl nk. verður haldin hátíð í Árbæ eins og er við hæfi þegar Sumardagurinn fyrsti gengur í garð.

Fimmtudaginn 24. apríl nk. verður haldin hátíð í Árbæ eins og er við hæfi þegar Sumardagurinn fyrsti gengur í garð.

Samkvæmt veðurspá verður gott veður í Árbæ og spáin á vef veðurstofunnar (vedur.is) gerir ráð fyrir 8-9 stiga hita, smá sólarglennu um miðjan dag og 6 m/s! Óvenjulega gott veður miðað við fyrri ár! Það er samt engin ástæða til annars en að búa sig vel og drífa sig með börn og buru, gleymum ekki að taka ömmu og afa, frænda og frænku með á hátíðarhöldin sem hefjast strax um morguninn með "opnu húsi" í Árbæjarlaug og heldur svo áfram fram eftir degi.

Góða skemmtun Árbæingar, njótum dagsins saman!

Gleðilega hátíð!

Dagskrár sumardagsins fyrsta í Árbæ:

09:00-11:00  Frítt í Árbæjarlaug.

09:30  Sundsumba í boði Árbæjarþreks í Árbæjarlaug.

11:00  Skrúðganga frá Árbæjarlaug. Gengið að Árbæjarkirkju (upp Fylkisveg að Rofabæ og Rofabærinn að Árbæjarkirkju).

11:30  Fjölskylduhelgistund í Árbæjarkirkju. Gospelkór Árbæjarkirkju syngur.

12:00-14:00  Sumarhátíð á Árbæjartorgi.

  • Hljómsveit úr Tíunni spilar á útisviði Ársels.
  • Meistaraflokkar Fylkis í fótbolta.
  • Kynning á sumarstarfi Fylkis.
  • Æskulýðsfélag sakÚL verður með pylsu og vöfflusölu til styrktar unglingastarfi í Árbæjarkirkju.
  • Hoppukastalar.

13:00-15:00  Skátar úti og inn - Hraunbær 123.

Hjá skátafélaginu Árbúum er hægt að fara í póstaleik, grilla útileigubrauð og klifra í trönum, kíkja á skátaheimilið og styrkja skáta með því að kaupa candy floss, kökur og kaffi.