Note: This news was published over two years ago.
Hverfissjóður Reykjavíkur
Tilgangur Hverfissjóðs Reykjavíkur er að styðja við verkefni sem stuðla að eftirtöldum þáttum í hverfum borgarinnar:
- Bættu mannlífi og eflingu félagsauðs.
- Fegurri ásýnd borgarhverfa.
- Auknu öryggi í hverfum borgarinnar.
- Samstarfi íbúa, félagasamtaka eða fyrirtækja við borgarstofnanir.
Frestur til að sækja um styrk til Hverfissjóðs Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 er til miðnættis þriðjudaginn 15. apríl. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einu eða fleiri hverfum eða almennt í borginni.
Einstaklingar, hópar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um.
Hámarksupphæð hvers styrks er 700.000 krónur.