Stóra upplestrarkeppnin

""

Lokahátíð Stóru - Upplestrarkeppninnar í Grafarvogi og Kjalarnesi var haldin í Hlöðunni við Gufunesbæ 31. mars 2014.

Stóra upplestrarkeppnin hófst að vanda í öllum 7. bekkjum í Grafarvogi og á Kjalarnesi í degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn.  Á lokahátíðinni tóku þátt fjórtán nemendur úr öllum grunnskólum Grafarvogs og Kjalarness,  7 strákar og 7 stúlkur. Þau voru fulltrúar sinna skóla og voru valin til þátttöku í keppnum sem fram fóru í hverjum skóla.

Flytjendur á Lokahátíðinni voru:

Foldaskóli - Axel Pálsson og Thelma Kristín Maronsdóttir Hamraskóli - Ásgeir Rafn Sigurðsson og Sonja Sævarsdóttir

Húsaskóli - Emilía Ósk Svavarsdóttir og Ragna Björg Haraldsdóttir

Kelduskóli  - Arngrímur Broddi Einarsson og Glódís Ylja Hilmarsdóttir Klébergsskóli  - Tómas Sveinbjörnsson og Þórdís Agla Kristinsdóttir

Rimaskóli - Kári Jóhannesarson og Róbert Ingi Baldursson Vættaskóli - Friðjón Heiðarsson og Hrafnhildur Lilja Andrésdóttir

Arngrímur Broddi Einarsson úr Kelduskóla hlaut 1. sæti, í 2. sæti var Róbert Ingi Baldursson úr Rimaskóla og í 3. sæti var Kári Jóhannesarson einnig úr Rimaskóla.

Nemendur úr 7. SS í Vættaskóla Borgum sungu lag úr Bugsy Malone sem þau settu upp á árshátíðs skólans og Jón Arnar Einarsson úr Foldaskóla lék tvö lög á básúnu. Þær Andrea Hlynsdóttir úr Kelduskóla og Teresa Evertsdóttir úr Rimaskóla voru kynnar á hátíðinni. Formaður dómnefndar var Ingibjörg Einarsdóttir og aðrir dómarar Björk Einisdóttir, Haraldur Finnsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Þóra Melsted.

Hátíðin var vel sótt og stóðu flytjendur sig með miklum sóma, lögðu sig fram og sýndu metnað og dug.