English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Skóli og frístund Íþróttir og útivist
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að veita framhaldsskólanemum aðgang að sundlaugum og listasöfnum borgarinnar án endurgjalds á meðan verkfalli framhaldsskólakennara stendur frá og með föstudeginum 28. mars.
Samþykkt var á fundi borgarráðs í gær, 20. mars, að veita framhaldsskólanemum aðgang að sundlaugum og listasöfnum borgarinnar án endurgjalds á meðan verkfalli framhaldsskólakennara stendur. Reykjavíkurborg lítur á þetta sem framlag til að stuðla að virkni og bættri lýðheilsu nemenda þótt starfsemi framhaldsskólanna falli niður tímabundið. Þetta tekur þó ekki gildi strax því íþrótta- og tómstundasviði og menningar- og ferðamálasviði var falið að útfæra tillöguna með það að markmiði að hvetja til virkni innan hefðbundins skóladags. Útfærslan verður endanlega afgreidd á fundi borgarráðs fimmtudaginn 27. mars. Framhaldsskólanemar ættu því að geta sótt sundstaði og listasöfn borgarinnar án endurgjalds, á ákveðnum tímum, frá og með föstudeginum 28. mars standi verkfallið ennþá þann dag.