Öskudagur í Breiðholti

""

Í sumum hverfum borgarinnar hefur verið tekin upp sú hefð að í stað þess að beina börnunum niður í bæ á öskudag til að syngja í fyrirtækjum þá bjóða íbúar í hverfinu þeim að koma við hjá sér, syngja og fá góðgæti að launum. 

Þetta hefur gefist vel og í ár verður sama fyrirkomulag prófað víða í Breiðholti, m.a. fyrir tilstuðlan nokkurra foreldrafélaga við grunnskóla í hverfinu. Þau heimili sem vilja taka þátt merkja hurð sína á einhvern hátt, til dæmis með miða sem á stendur:

Öskudagur

Við tökum vel á móti öllum börnum!

Einnig er hægt að binda plastpoka um hurðarhúninn sem gefur til kynna að börnin séu velkomin. Öskudagurinn er næsta miðvikudag, 5. mars 2014. Miðað er við að börnin verði á ferðinni milli kl. 17:00 og 19:00. Íbúar Breiðholts eru hvattir til að taka þátt  og þróa öskudag þannig að hann verði að skemmtilegri hverfishátíð!