English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Á vormisserinu verður tekið fyrsta skrefið að því að innleiða þjónustustaðal í skólamötuneytum borgarinnar þannig að hráefni sé sambærilegt að gæðum og matseðlar næringarútreiknaðir í samræmi við ráðleggingar Embættis landslæknis. Byrjað verður í Grafarvogi og á Kjalarnesi þar sem rösklega 2.000 nemendur eru í mataráskrift.
Við innleiðinguna verður eitt hverfi tekið í einu en markmiðið er að öll börn í borginni fái sambærilega næringaríkar máltíðir. Skólamötuneyti í fimm öðrum hverfum munu fylgja í kjölfarið á Grafarvogi og Kjalarnesi, þar á eftir mötuneyti leikskóla og frístundaheimila.
Verið er að setja saman sameiginlegan gagnagrunn fyrir matseðla þannig að sambærilegt hráefni verði í boði í skólamötuneytum hverfa á tilteknum dögum. Með því móti má áætla betur hráefnismagn og ná fram hagræði í innkaupum. Yfirmenn mötuneyta munu nýta þennan grunn við val á uppskriftum og matseðlum sem uppfylla orku- og næringarþörf barna miðað við aldur.
Á liðnu ári var á sett á laggir miðlæg stoðdeild hjá borginni til að styðja við starfsemi skólaamötuneytanna með það að markmiði að hámarka og tryggja samræmd gæði þjónustunnar og ná fram hagkvæmni í rekstri. Í fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir 2014 var úthlutað viðbótarfjármagni til að bæta gæði hráefnis í skólamötuneytunum, tæpar 87 milljónir til grunnskólanna og rúmar 40 milljónir til leikskólanna.
Um 12.000 grunnskólabörn eru í mataráskrift í skólamötuneytum borgarinnar og er fjöldi hádegisverða þeirra um 2,1 milljón matarskammtar.
Samkvæmt þjónustukönnunum skóla- og frístundasviðs eru 68% foreldra ánægðir með mötuneyti grunnskólanna, en 81% ánægðir með mötuneyti leikskólanna þar sem 6.000 börn fá allt að fimm máltíðir á dag. Á frístundaheimilunum fá um 3.000 börn millimáltíð.