English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Í alþjóðlegri móðurmálsviku 21. - 28. febrúar verður efnt til nokkurra viðburða til að vekja athygli á gildi móðurmálsins og mikilvægi þess fyrir menningu þjóða.
Dagur móðurmálsins er þann 21. febrúar og verður í tilefni dagsins vakin athygli á starfi fjölmargra aðila sem tengjast ólíkum móðurmálum, hvatt til umræðu í skólum um hvernig megi koma til móts við nemendur sem tala annað móðurmál en íslensku og myndböndum um efnið komið á framfæri. Á vef Tungumálaversins í Laugalækjarskóla má finna hugmyndir að umræðuefni og verkefnum.
í alþjóðlegu móðurmálsvikuni verður jafnframt efnt til samvinnu við skóla um allt land sem felur í sér skráningu einstakra bekkja á tungumálaforða sínum.
Móðurmálsvikunni lýkur með málþingi í Norræna húsinu, föstudaginn 28. febrúar, kl. 15:00 - 17:00.
Sjá nánar á heimasíðum www.unesco.is og www.vigdis.hi.is.