Líkamsrækt fyrir eldri borgara í Gerðubergi og Árskógum

""

Leitað er eftir þátttakendum að báðum kynjum á aldrinum 65 - 85 ára til að taka þátt í rannsókn á áhrifum líkamsræktar á líkamlega og vitræna virkni meðal aldraðra. 

Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Dr. Milan Chang Gudjonsson, lektor & faraldsfræðingur. Aðrir rannsakendur eru Alfons Ramel, Ólöf Guðný Geirsdóttir og Maria Sastre, Kristrún Ólöf Sigurðardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir og Guðmundur Böðvar Guðjónsson. Rannsóknin hefur fengið leyfi Vísindasiðanefndar og Landspítala og verið tilkynnt til Persónuverndar.

Rannsóknin tekur 12 vikur og felst í eftirfarandi:

1. Þátttakendur í rannsókninni koma reglulega á líkamsræktarnámskeið í 12 vikur.

2. Þátttakendur gera sjálfir æfingar heima hjá sér á tímabilinu.

3. Þátttakendur gangast undir mælingar og svara spurningum fyrir og eftir námskeiðið.

Þeir sem hafa áhuga á að fá frekari upplýsingar eða hafa áhuga á þátttöku í ofangreindri rannsókn geta fengið frekari upplýsingar í síma 616 9459, 867 8624 eða sent fyrirspurn á netfangið changmilan@gmail.com & reinasol@hotmail.com.

Líkamsræktarámskeiðið sem haldið verður sem hluti af rannsókninni er þátttakendum að kostnaðarlausu, en þeir fá ekki greitt fyrir þátttöku í æfingum eða mælingum. Tekið skal fram að þeir sem hafa samband eru með því aðeins að lýsa yfir áhuga sínum á því að fá frekari upplýsingar, ekki að skuldbinda sig til þátttöku. Þeir sem taka þátt í rannsókninni geta hvenær sem er dregið sig út úr henni án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni.