Ljósadýrð í mögnuðu myrkri
Það má með sanni segja að borgin hafi baðað sig í ljósum við opnun Vetrarhátíðar í gærkvöldi. Setning hátíðarinnar fór fram í garði Listasafns Einars Jónssonar, og tendraði þá Jón Gnarr borgarstjóri á tíu ljóssýningum um alla borg. Ljósasýningarnar verða í gangi alla daga á meðan á hátíðinni stendur. Í kvöld verður svo safnanótt þar sem frítt verður á öll söfn á höfuðborgarsvæðinu og skemmtileg og fjölbreytt dagskrá verður í boði.
Fjölmenni kom á opnun Vetrarhátiðar í garði Listasafns Einars Jónssonar í gærkvöldi. Jón Gnarr opnaði hátíðina og sagði hana vera stærri en nokkru sinni fyrr, hún stenur yfir í tíu daga og er í samstarfi við Þórhöfn í Færeyjum og Manchester í Englandi.
Í garðinum var ljósasýning sem hópurinn Myrkraverk stóð fyrir, litir og mynstur lýstu upp myrkrið og skapaðist mögnuð stemning enda er yfirskrift hátíðarinnar Magnað myrkur. Að lokinni setningu var svo farið í ljósagöngu um borgina þar sem gengið var að hinum ljósaverkunum sem prýða borgina. Meðal þeirra eru verkin Circle 6, Lys*arp, On the bridge, Jellyfish, Styttur borgarinnar vakna , Guerilla lighting með lýsingarfræðinemum úr Tækniskólanum og krökkum úr félagsmiðstöðvum í Breiðholti, Hönd í hönd við Reykjavík sem er nýtt ljósaverk Ólafs Elíassonar, Afhjúpun Tollhússins er ljósaverk eftir Dario Nunez Salazar og nemendur Tækniskólans verða með ljósainnsetningu við Tækniskólann á Skólavörðuholti. Sjá kort yfir staðsetningu verkanna
Í Iðnó var svo fullt út úr dyrum í gærkvöldi en þar voru tónleikarnir Denver Calling. Fram komu íslensku tónlistarmennirnir Högni Egilsson í Hjaltalín, Lay Low, Snorri Helga og frá Denver komu Tyler Ludwick (Princess Music), Esmé Patterson (Paper Bird) og Jesse Elliott (Ark Life).
Í kvöld verður svo safnanótt en þá opna fjörtíu söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá. Sérstakur Safnanæturstrætó gengur frítt á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja söfnin á Safnanótt.