Reykjavík færir Þórshöfn jólatré að gjöf

""

Ljósin á jólatrénu sem Reykjavíkurborg gaf Þórshafnarbúum voru tendruð við hátíðlega athöfn í miðborg Þórshafnar í gær. Jólatréð var höggvið á skógræktarsvæði Skógræktar Reykjavíkur á Elliðavatnsheiðinni í Heiðmörk  þann 20. nóvember sl.  Hedin Mortensen, borgarstjóri Þórshafnar, þakkaði fyrir tréð og sagði að gjöfin myndi styrkja enn frekar vinaböndin milli þjóðanna.

 
Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar, afhenti tréð fyrir hönd Reykjavíkurborgar og í ræðu sinni sagði hún að Íslendingar töluðu um norðurlandaþjóðirnar sem frændur en Færeyinga sem bræður. "Tvær eyþjóðir lengst úti í hafi, við tölum nánast sama tungumál, við samgleðjumst hvert öðru í gleði, við stöndum saman í erfiðleikum, og við styðjum hvert annað í sorg. Tréð er þakkarvottur frá Reykvíkingum til Færeyinga."
 
Jón Gnarr, borgarstjóri, vildi með einhverju móti þakka Færeyingum þá frændsemi og vináttu sem þeir hafa sýnt Íslendingum í gegnum tíðina og var ákveðið í að færa þeim jólatré að gjöf í samvinnu við Skógræktarfélag Reykjavíkur.Jólatréð var höggvið á skógræktarsvæði Skógræktar Reykjavíkur á Elliðavatnsheiðinni í Heiðmörk þann 20. nóvember sl. Tréð er 12 metra hátt sitkagreni sem var gróðursett árið 1960 af stúlknahópi í Vinnuskóla Reykjavíkur og er því 53 ára gamalt. Eimskip sá um flutning trésins til Færeyja.
 
Þetta er fyrsta jólatréð sem Reykjavíkurborg gefur Þórshöfn og er það von borgarstjóra að þessi siður verði viðhafður ár hvert héðan í frá til að minna á og treysta hin tryggu vinabönd milli þjóðanna tveggja. 
 
Jólatréð stendur nú upplýst á Tinghúsvöllinum, torgi í miðborg Þórshafnar, og var margmenni samankomið við athöfnina í gær. 
Heðin Mortensen borgarstjóri Þórshafnar þakkaði reykvíkingum kærlega fyrir gjöfina og sagði þetta nýjan jólasið sem myndi styrkja enn frekar samstarf og vinsemd millil borganna tveggja.
 
" Vit fegnast og takka fyri hesa gávu, sum er byrjanin til nýggjan jólasið millum høvuðsstaðirnar báðar, og sum er við til at styrkja okkara góða samstarv og vinalag. Eg fegnist eisini um, at umboð fyri Reykjavíkar býráð eru á vitjan hjá okkum, nú fyrsta íslendska jólatræið á Vaglinum verður tendrað. - Hjartaliga vælkomin."