Jólafundur Safnaðarfélags Grafarvogskirkju

""

Jólafundur Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldinn mánudaginn 2. desember. Fundurinn hefst kl. 20:00 í Grafarvogskirkju. Hefðbundnar hefðir hafðar í hávegum og hefst jólafundurinn með ritningalestri og bæn.

Björg Þórhallsdóttir syngur jólalög við undirleik Hilmars Arnar Agnarssonar.

Edda Andrésdóttir les úr nýútkominni bók sinni, Til Eyja. Fjörutíu árum eftir að jörðin rifnaði á Heimaey, nánast við bæjardyrnar á Kirkjubæ, þar sem Edda dvaldi á sumrin hjá ömmu sinni og afa, vitjar hún liðinna tíma.

Guðni Ágústsson er ávallt léttur í lund og segir skemmtilegar sögur af sjálfum sér og öðrum.

Jólalegar veitingar með jólalegum tónum frá Þóru Björg Sigurðardóttur.

Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest og hvetjum ykkur til að taka með gesti og eiga notalega stund í Grafarvogskirkju.

Stjórn Safnaðarfélags Grafarvogskirkju