Myrkurkvöld
Opið hús á Korpúlfsstöðum fimmtudagskvöldið 28. nóvember.
Korpúlfsstaðir verða opnir frá kl. 17:00-21:00.
Vinnustofur listamanna verða opnar.
Samsýningin „Brotabrot“ í stóra salnum.
Kaffihúsið „Litli bóndabærinn“ verður með veitingar auk þess sem þar verður upplestur:
- Lísa Rún flytur eigin ljóð
- Guðný Hallgrímsdóttir les upp úr bók sinni „Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur“ (einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu).
Tónlist mun óma um salarkynni Korpúlfsstaða:
- Tríóið Dimma mun syngja nokkra negrasálma og jólalög.
- List Einn: Atli Steinn Hrafnkelsson flytur frumsamin lög.
- Hjónin Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson koma með tóninn að norðan.
- Íris Edda Jónsdóttir syngur jólalög við undirleik Ragnars Ólasonar.
Korpúlfar, samtök eldri borgara í Grafarvogi, verða með opið hús hjá sér og bjóða upp á fagran söng og harmonikkuleik.
Gallerí Korpúlfsstaðir opnar kl. 14:00 og verður opið til kl. 21:00. Þess ber að geta að nú stendur yfir LIKE-leikur gallerísins og verður dregið úr pottinum fimmtudagskvöldið 28. nóvember á Myrkurkvöldi Korpúlfsstaða. Verðlaunin eru listmunur að andvirði kr. 15.000,-.
Við hvetjum alla til að taka þátt í leiknum: https://www.facebook.com/gallerikorpulfsstadir