Merki Breiðholts
Hverfisstjóri Breiðholts, Óskar Dýrmundur Ólafsson, hefur látið hanna merki fyrir Breiðholt. Stofnunum, félögum, samtökum, einstaklingum og fyrirtækjum stendur til boða að nota merkið og þess vegna er það sett á vefsíðu Breiðholts til að vera öllum aðgengilegt. Merkinu er ætlað að efla hverfisvitund og samkennd í Breiðholti.

Myndlistarmaðurinn Björn Þór Björnsson, betur þekktur sem Bobby Breiðholt, hannaði merkið. Merkið var handskrifað með bleki og pensli, síðan var það teiknað upp á nýtt í tölvu og að lokum hnikað ögn til af Sveinbirni Pálssyni týpógrafíumeistara.
Hverfisstjóri Breiðholts hvetur alla í Breiðholti til að nota merkið, en það má nálgast með því að smella hér.