Aflagrandi 40 tekur skref 2

""

Fimmtudaginn 31. október síðastliðinn fengum við hér á Vesturreitum viðurkenningu fyrir að ljúka skrefi 2 í Grænu skrefunum svokölluðu. Vesturreitir er félagsmiðstöð og heimaþjónusta sem staðsett er á Aflagranda 40. 

Fimmtudaginn 31. október síðastliðinn fengum við hér á Vesturreitum viðurkenningu fyrir að ljúka skrefi 2 í Grænu skrefunum svokölluðu. Vesturreitir er félagsmiðstöð og heimaþjónusta sem staðsett er á Aflagranda 40. Verkefnið Græn skref snýst um að efla vistvænan rekstur í starfsemi Reykjavíkurborgar ásamt því að skapa fordæmi í því að minnka umhverfisáhrif sveitarfélagsins með kerfisbundnum hætti. Verkefnið er innblásið frá umhverfisstjórnunarkerfi Harvard háskóla í Bandaríkjunum sem nefnist Green Office og er ætlað að minnka neikvæð umhverfisáhrif háskólans. Framkvæmd verkefnisins er einföld og aðgengileg og allir vinnustaðir á vegum Reykjavíkurborgar geta tekið þátt. Grænu skrefin eru alls fjögur talsins og þetta umhverfisstjórnunarkerfi byggist á fjölmörgum aðgerðum. Öllum vinnustöðum borgarinnar býðst að tileinka sér þessar aðgerðir og hafa þannig jákvæð áhrif á umhverfið, bæta starfsumhverfi starfsmanna sinna og draga úr rekstrarkostnaði.

Okkur hér á Vesturreitum, bæði starfsfólki og notendum, er umhugað um umhverfið og viljum við vera vistvæn og setja gott fordæmi í verki varðandi þetta mikilvæga málefni. Hér er allt sorp flokkað, pappír nýttur eftir fremsta megni og rafmagnsnotkun og útprentun í lágmarki. Nú er stefnan sett á að ljúka skrefi þrjú eins fljótt og auðið er og hvetjum við fleiri vinnustaði Reykjavíkurborgar til að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni.