Hverfisráð Laugardals og hverfisráð Háaleitis- og Bústaðahverfis auglýsa eftir umsóknum
Hverfisráð Laugardals og hverfisráð Háaleitis- og Bústaðahverfis vekja athygli á að einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um styrki til hverfisráðs vegna sérstakra viðburða eða verkefna í hverfum Reykjavíkurborgar, m.a. vegna hverfishátíða, hreinsunarátaka, kynningarfunda um borgarmálefni, íbúaþinga, nágrannavörslu eða hvatningaverðlauna.
Umsækjendur skulu hafa eftirfarandi í huga við gerð umsókna:
Í umsókn skal koma fram nafn, kennitala og heimilisfang ábyrgðaraðila. Einnig komi fram hvort umsækjandi hafi hlotið styrk frá öðrum nefndum eða stofnunum á vegum Reykjavíkurborgar eða hafi sótt um slíka styrki.
Ef fleiri en einn aðili sækja sameiginlega um styrk til ákveðins verkefnis skulu allir staðfesta umsókn með undirritun
Eftir umsaminn tíma (sem fer eftir eðli verkefna) skulu styrkþegar skila inn skýrslu þar sem greint verður frá því hvernig styrknum hafi verið varið. Með skýrslunni skulu fylgja frumgögn, s.s. greiðslukvittanir.
Styrkþegar skulu láta þess getið í kynningarefni að þeir hafi hlotið styrk frá viðkomandi hverfisráði.
Umsóknir skulu berast til Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, merkt hverfisráði Laugardals, b/t. framkvæmdastjóra. Mikilvægt er að símanúmer og netfang umsækjenda fylgi með umsókn.
Einnig má senda umsóknir rafrænt á netfangið baldur.orn.arnarson@reykjavik.is
Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið, markmið þess og framgang. Að auki skal fylgja nákvæm kostnaðaráætlun.
Heildarfjárhæð hverfisráðsins til styrkja á árinu 2013 er 500.000 krónur.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð hér hægri undir tengd skjöl.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2013.