Afbrotum fækkar í Breiðholti

""

Árlegur fundur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í Breiðholti var haldinn mánudagskvöldið 28. október síðastliðinn. Ríflega 20 manns mættu á fundinn sem var haldinn í Gerðubergi. Ómar Smári Ármannsson og Stefán Eiríksson fóru yfir stöðu mála í hverfinu.

Árlegur fundur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í Breiðholti var haldinn mánudagskvöldið 28. október síðastliðinn. Ríflega 20 manns mættu á fundinn sem var haldinn í Gerðubergi. Ómar Smári Ármannsson og Stefán Eiríksson fóru yfir stöðu mála í hverfinu. Fram kom í máli þeirra að síðustu ár hefur jákvæð þróun átt sér stað í Breiðholti líkt og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Brotum í hverfinu hefur fækkað og má nefna innbrot á heimili í því sambandi. Staða mála í Breiðholti er því að mörgu leyti góð og þar er að gott að búa, eins og Breiðhyltingar vita auðvitað manna best.

Hljóðið í fundargestum var almennt gott og jákvæðni í fyrirrúmi. Meðal annars var rætt um nágrannavörslu, málefni barna og unglinga og fíkniefnamál. Þetta er raunar svipað umræðuefni og á mörgum fundum hjá lögreglunni í haust og greinilegt að mál sem þessi standa fólki nærri.

Fundurinn var sendur út í beinni útsendingu á Vefnum - hana má nálgast hér.

Hér er öll tölfræði frá fundinum.