Fegrun umhverfis við grásleppuskúra

""

Umhverfið hefur verið fegrað við grásleppuskúrana kunnu við Ægissíðu. Einnig hafa verið settir upp lyftingasteinar í samræmi við aflraunasteinana á Djúpalónssandi. Eflaust hafa margir gaman af því að kanna afl sitt á þeim.

Verkefnið var kosið af íbúum í Vesturbæ í rafrænum íbúakosningum 2013 vegna Betri hverfa og kostaði tvær milljónir. Menn geta einnig kannað hreysti sína á hreystivelli og þrautabraut á skólalóð Hagaskóla þegar því verki lýkur í enda október.

Í nóvember verður opnað fyrir innsetningu á hugmyndum frá íbúum inn á vefinn Betri hverfi 2014 en til stendur að halda rafrænar íbúakosningar í mars 2014. Fylgist með og sendið endilega sem flestar hugmyndir fyrir hverfin ykkar. Með því verður borgin blómlegri.