Reykvísk ungmenni ánægð með Atvinnutorg
Nýlega var gerð rannsókn á árangri og starfi Atvinnutorgs, sem er úrræði fyrir atvinnulaus ungmenni í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og á Suðurnesjum. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt. Annars vegar að bera saman verklag Atvinnutorga í þessum sveitarfélögum og hins vegar að kanna afdrif þeirra ungmenna sem nýttu sér þetta úrræði á árinu 2012 og fá fram viðhorf þeirra til þjónustunnar.
Þeir sem tóku þátt í í fyrsta áfanga rannsóknarinnar voru sex atvinnuráðgjafar, þrír á Atvinnutorgi í Reykjavík og einn frá Atvinnutorgum í Kópavogi, Hafnarfirði og á Suðurnesjum. Þátttakendur í síðari hluta rannsóknarinnar voru 228, allt notendur Atvinnutorga á árinu 2012.Tekin voru símaviðtöl við þá til þess að afla upplýsinga um afdrif þeirra á vinnumarkaði og viðhorf til þjónustunnar. Flestir voru í vinnu eða í námi þegar rannsóknin var gerð.
Niðurstöður sýndu að þátttakendur eru almennt ánægðir með þá þjónustu sem þeir fá á Atvinnutorgum sem og þá ráðgjöf sem þeir fengu. Athyglisvert er að sjá viðhorf reykvískra ungmennanna til Atvinnutorgs sem stuðningsúrræðis en þar kom fram að 77% aðspurðra voru ánægð eða mjög ánægð með þá þjónustu sem þau fengu á Atvinnutorgi.
Einnig leiddi rannsóknin í ljós ánægju með störf atvinnuráðgjafa en 94,2% aðspurðra í Reykjavík voru ánægð eða mjög ánægð með sinn persónulega atvinnuráðgjafa. Í þriðja lagi er vert að nefna að hlutfall aðspurðra sem myndu mæla með Atvinnutorgi sem stuðningsúrræðis við vin eða vinkonu var 91,8% aðspurðra í Reykjavík. Atvinnutorg fær líka góða svörun fyrir eftirfylgni með einstaklingum sem fara í tímabundnar ráðningar. Þar kemur fram að rösklega helmingur fékk eftirfylgd í starfi þrisvar sinnum eða oftar og ríflega 15% tvisvar sinnum. Tæplega 40% aðspurðra voru enn í vinnu eða námi í júlí 2013. Af heildinni var 28,5% þjónustuþega á Atvinnutorgi árið 2012 ennþá í þjónustu Atvinnutorgs í júlí 2013. Það sýnir að hluti hópsins þarf meiri stuðning til að ná fótfestu á vinnumarkaði.
Rannsóknin sýnir án nokkurs vafa að þjónusta Atvinnutorgs við ungmenni skilar árangri.
Hjá Atvinnutorgi í Reykjavík er veitt einstaklingsmiðuð þjónusta. Ráðgjafar gera markmiðasetningu með notandanum um viðveru hans á torginu þar sem ungmennið fær aðstoð við að gera ferilskrá, sækja um störf auk þess að kanna atvinnu- og námstækifæri. Dæmi um markmið er að mæta á Atvinnutorg þrisvar sinnum í viku, sækja um ákveðinn fjölda starfa og fylgja eftir umsóknum.