English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Nýtt og endurbætt gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn verður opnað að Lindargötu 48 á vormánuðum 2014. Þar með mun starfseminni sem hefur verið í Þingholtstræti 25 í nær 50 ár ljúka. Markmiðið með nýju húsnæði er að bæta aðstöðu og stuðning við heimilislausa, en að undanförnu hefur ítrekað verið bent á nauðsyn þess
Velferðarráð Reykjavíkurborgar fól velferðarsviði að undirbúa flutning á gistiskýlinu í maí síðastliðnum. Velferðarráð samþykkti síðan á fundi sínum þann 19. september sl. tillögu um nýtt húsnæði fyrir starfsemi gistiskýlis að Lindargötu 48.
Framundan eru talsverðar framkvæmdir á húsnæðinu að Lindargötu 48, bæði innan og utan húss. Framkvæmdirnar hefjast á næstu mánuðum og er áætlað að þeim ljúki á vormánuðum 2014.
Húsið er á skipulagssvæði þar sem gert er ráð fyrir blandaðri starfsemi af margvíslegum toga. Starfsemin samrýmist ákvæðum Aðalskipulags Reykjavíkur 2001-2024 um blandaða byggð og hefur Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur ekki gert skipulagslegar athugasemdir við að breyta notkun hússins.
Reykjavíkurborg hefur starfrækt gistiskýli fyrir heimilislausa menn að Þingholtsstræti 25 frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. Núverandi húsnæði gistiskýlisins að Þingholtsstræti 25 uppfyllir ekki þau skilyrði sem gerð eru til starfsemi gistiskýla, meðal annars vegna öryggissjónarmiða og aðgengis. Lítið hefur farið fyrir starfseminni í þéttri byggð Þingholtanna undanfarna áratugi.
Gistiskýlið er opið alla daga ársins frá kl. 17 til kl. 10 næsta dag. Menn geta komið til gistingar hvenær sem er á opnunartíma, en ró skal vera í húsinu eftir kl. 24. Markmiðið með starfseminni er að veita húsnæðislausum reykvískum mönnum næturgistingu. Í gistiskýlinu er mönnunum veitt ráðgjöf og þeir fá stuðning til að breyta aðstæðum sínum auk þess sem þeir eru í tengslum við félagsráðgjafa á þjónustumiðstöðvum, ef um ítrekaða dvöl er að ræða.