English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Innipúkinn hefur skipað sér í sess meðal vinsælustu viðburða verslunarmannahelgar síðustu ár. Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sérmiða á hátíðina í ár sem fer framdagana 2. til 4. ágúst. Á síðustu árum hafa þekktar hljómsveitir stigið á svið á hátíðinni og má þar nefna bandarísku sveitirnar Cat Power og Blonde Redhead og íslensku sveitina Amiinu. Meðal þeirra tónlistarmanna sem hafa staðfest komu sína í ár eru Grísalappalísa, Steed Lord, Gísli Pálmi og Botnleðja.
Þetta er í tólfta skipti sem viðburðurinn er haldinn og mun hann í ár fara fram á Faktorý, Kex Hostel og Fellagörðum í Breiðholti en þar hefur mikið menningarlegt uppbyggingarstarf átt sér stað í sumar.