Margbreytileiki á menningarmóti í Háteigsskóla

Mannlíf Menning og listir

""

Menningarmótið Fljúgandi teppi var haldið í Háteigsskóla í morgun í fimmta sinn, en þar fengu nemendur, foreldrar og starfsfólk tækifæri til að hittast og kynna menningu sína og áhugamál. Það voru nemendur í 5. bekk sem kynntu áhugamál sín og menningarheima. Á menningarmóti þarf ekki endilega að kynna þjóðarmenningu heldur það sem mestu skiptir fyrir hvern og einn utan skólatímans. Allir eru þátttakendur og áhorfendur um leið.

Margra grasa gætti í áhugamálum nemenda; fótboltastelpur greindu frá afrekum sínum, frímerkjasafnari sýndi dýrmætasta safnkostinn, áhugamenn um fjarstýrða bíla mættu með tryllitækin og ungar tónlistarkonur leyfðu gestum að njóta tónsmíða sinna í Bíóphilóiu-forriti. Þá gátu gestir kynnt sér áhugamál eins og skrímslateikningar, steinasöfnun og strokleðra-söfnun.

Menningarmótsverkefnið Fljúgandi teppi hefur nú flogið milli skóla í Reykjavík í fimm ár. Verkefnið er hlutur af fjölmenningarstarfi Borgarbókasafns Reykjavíkur og er markmiðið að fagna margbreytileika nemenda og að skapa meðvitund um mikilvægi menningarheims hvers og eins; að allir geyma fjársjóð inni í sér sem hefur rétt á að gerast sýnilegur. Þeir grunnskólar sem hafa ákveðið að menningarmótaðferðin verði fastur hlutur af skólastarfinu eru Háteigsskóli, Öldusesskóli, Fellaskóli og Ingunnarskóli. Hér má sjá Fljúgandi teppi menningarmótverkefnið í fjölmenningarstefnu Ingunnarskóla.

Frá árinu 2008 hafa verið haldin 60 - 70 menningarmót í leik-, grunn- og framhaldsskólum í Reykjavík.