Til stuðnings kajakræðaranum Guðna Páli Viktorssyni

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Stuðningslið Guðna Páls Viktorssonar sem nú siglir á kajak kringum landið kom á fund Jóns Gnarr borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Guðni Páll lagði af stað í ferðina  á Höfn í Hornafirði þann 30. apríl síðastliðinn og er um það bil hálfnaður. Ferðalagið nefnist Around Iceland 2013 og safnar Guðni Páll áheitum og rennur ágóðinn til Samhjálpar. Guðni undirbjó ferðina vel áður en hann lagði af stað og var að mörgu að hyggja en hann segir öryggi fyrir öllu því hann sé einn á ferð og allt geti gerst á sjó.

Gísli H. Friðgeirsson, kajak ræðari og stuðningsliði Guðna Páls, mætti í Ráðhúsið í morgun íklæddur kajakgalla með kajak meðferðis og gerði Jón Gnarr sér lítið fyrir og fór í gallann og kajakinn eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Nánar má lesa um ferðalag Guðna Páls á heimasíðunni: www.aroundiceland2013.com