Frábær kynnisferð á vegum Strætó

""

Íbúar og starfsfólk heima- og stuðningsþjónustu í Hátúni fóru í frábæra kynnisferð sem haldin var á vegum Strætó. Hildur Guðjónsdóttir sem starfar sem deildarfulltrúi í akstursdeild hjá Strætó hafði samband við Sveinfríði Ragnarsdóttur sem starfar í stuðningsþjónustunni og vildi athuga hvort áhugi væri fyrir slíkri ferð. Það reyndist heldur betur vera áhugi fyrir því!

Sveinfríður hengdi upp auglýsingar hér í Hátúni og hélt utan um skráningar. Starfsfólk heima- og stuðningsþjónustunnar buðu þeim aðstoð sem þess þyrftu svo allir kæmust með sem vildu. Vel gekk að fá fólk til að skrá sig og enduðu 23 einstaklingar í ferðina en strætóinn tekur 30 í sæti.

Þetta var 2ja tíma ferð þar sem við vorum sótt í Hátúnið af Pétri Þorsteinssyni  strætóbílstjóra  sem ók  með hópinn í höfuðstöðvar Strætó á Hesthálsi.  Byrjað var á því að setja bílinn í gegnum þvottastöð. Sumum var nú um og ó, en þetta gekk allt saman vel. Síðan var farið með hópinn um stöðina, sýnt verkstæðið, þjónustuver, akstursdeild og fleira. Eftir að hafa skoðað stöðina vel og fá skemmtilega kynningu á öllum stöðum, þar á meðal leiðarkerfi ferðaþjónustu fatlaðra, var okkur boðið í glæsilegt kaffi sem að Hildur og Júlía Þorvaldsdóttir sviðsstjóri farþegaþjónustusviðs héldu utanum.

Til að toppa þetta allt saman var hópurinn keyrður heim í gömlum og góðum strætóbíl  árgerð ´68 sem aðeins er notaður við hátíðleg eða sérstök tilefni. Hann vakti athygli alla leið í Hátúnið, enda var hann fullur af ánægðu fólki sem veifaði til annarra vegfarenda.

Við viljum við þetta bæta að starfsfólk Strætó tók virkilega vel á móti okkur, yndislegt viðmót og liðlegheit. Þau eiga hrós skilið. Hugsanlega verður áframhaldandi samstarfi með fleiri ferðir, enda heppnaðist þessi einstaklega vel.