Nýjar hugmyndir um Betri hverfi
Opnað hefur verið fyrir nýjar hugmyndir um betri hverfi til að setja inn á samráðsvefinn www.betrireykjavik.is. Á undirvefnum Betri hverfi geta íbúar forgangsraðað verkefnum í hverfum borgarinnar. Fjármagn til verkefnanna kemur úr hverfapottum og eru 300 milljónir til ráðstöfunar á þessu ári, eða sama upphæð og í fyrra.
Vefurinn Betri hverfi hefur verið endurbættur talsvert frá því í fyrra en þá bárust tæplega 400 hugmyndir frá borgarbúum inn á vefinn. Vefurinn verður opinn frá og með deginum í dag, 14. janúar - 15. febrúar næstkomandi en þá verður lokað fyrir innsetningu hugmynda. Seinni hluta febrúar geta borgarbúar kynnt sér hugmyndirnar, stutt þær eða hafnað eftir atvikum, en síðan verður efstu hugmyndum af vefnum stillt upp í rafrænum íbúakosningum sem verða haldnar dagana 14. - 19. mars.
Í fyrra var kosið á milli 182 hugmynda en af þeim kusu borgarbúar 124 hugmyndir sem hafa nú að mestu verið framkvæmdar af Reykjavíkurborg. Um er að ræða smærri nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni sem gera Reykjavík um margt notalegri og vistvænni.
Tæplega átta þúsund manns kusu í kosningunum í fyrra en kjósendur notuð veflykil ríkisskattstjóra og rafræn auðkenni.
Sáraeinfalt er að setja inn hugmyndir á Betri hverfi. Notendur verða að vera innskráðir á samráðsvefnum Betri Reykjavík til að geta sett inn hugmyndir, tekið þátt í að styðja og hafna hugmyndum og skrifa við þær röksemdir. Borgarbúar eru hvattir til þess að setja inn hugmyndir sínar á vefinn og taka virkan þátt í umræðu um hugmyndir annarra.
Fundir borgarstjóra
Í dag hefst fundaröð borgarstjóra í hverfum borgarinnar undir yfirskriftinni „Gerum Reykjavík enn betri!“ Fyrsti fundurinn fer fram í Laugalækjaskóla en hann er íbúa Laugardals, Laugarnesshverfis, Langholtshverfis og Vogahverfis. Á miðvikudag mun borgarstjóri funda með Árbæingum í Árbæjarskóla en á fimmtudag með Vesturbæingum í Vesturbæjarskóla.