Reykjavík tekur þátt í Liðsstyrk, átaki til atvinnu

Jón Gnarr borgarstjóri og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrituðu fyrir áramót samning um þátttöku Reykjavíkurborgar í atvinnuátaki sem fengið hefur heitið Liðsstyrkur. 

Liðsstyrkur hefst formlega  í dag en búið er að opna vefsíðu, http://lidsstyrkur.is/ þar sem bæði atvinnurekendur og atvinnuleitendur geta leitað nánari upplýsinga um átaksverkefnið. 

Reykjavíkurborg skuldbindur sig til að skapa allt að 300 störf, sem hvert varir í 6 - 7 mánuði. Markmið verkefnisins er að tryggja að enginn falli af atvinnuleysisbótum án þess að fá tilboð um starf. Auk þess ætlar Reykjavíkurborg að bjóða 100 einstaklingum á fjárhagsaðstoð störf. Þau störf fara m.a. til Atvinnutorgs sem er þjónusta við ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára.

Markmið átaksverkefnisins er að virkja atvinnuleitendur sem eru að fullnýta bótarétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins um þessar mundir.  Alls nær átakið til um 3.700 atvinnuleitenda og stendur til að skapa um 2.200 störf hjá ríki, sveitarfélögum og í einkageiranum. 

Sambærileg atvinnuátaksverkefni hafa verið framkvæmd áður en Liðsstyrkur sameinar mörg úrræði sem Reykjavíkurborg og ólíkir aðilar hafa unnið að fram til þessa. Að samstarfinu um Liðsstyrk standa auk sveitarfélaganna og velferðarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Vinnumálastofnun, Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök atvinnulífsins, VIRK starfsendurhæfingarsjóður og Starf vinnumiðlun og ráðgjöf. 

Verkefnið er hugsað til að  brúa bil einstaklinga sem hafa fullnýtt  rétt sinn til bóta og til að hjálpa þeim í leit að fastri atvinnu.