Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn komi í auknum mæli að menntun um sjálfbærni
Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum í dag að ganga til samstarfs við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um fræðslu- og þróunarstarf. Markmiðið er að styrkja fræðslu í starfsemi garðsins, s.s. á sviði náttúrufræði, og þar með þann grunnþátt menntunar í aðalnámskrá leik- og grunnskóla sem snýr að sjálfbærni. Þá samþykkti ráðið að leita leiða til að nýta Fjölskyldu- og húsdýragarðinn meira yfir veturinn til leiks og upplifunar og verður stofnað teymi til að skipuleggja slíka starfsemi.
Stýrihópur fagfólks mun verða bakland fyrir fræðslustarfið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum svo betur megi samtvinna það skólastarfi í borginni. Í tillögu skóla-og frístundaráðs er þeim tilmælum einnig beint til Strætó Bs að kanna möguleika á því að bæta samgöngur við Laugardalinn.
Fræðsla hefur verið hornsteinn í starfsemi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins frá upphafi, sérstaklega um íslensk dýr. Hins vegar er ljóst að garðurinn hefur fleiri möguleika í fræðslustarfi, í honum er vísir að sjávardýrasafni og einnig svokölluð vísindaveröld. Möguleikarnir á að efla fræðslustarf garðsins eru því fjölmargir þó þar skorti betri kennsluaðstöðu.
Skóla- og frístundaráð vill jafnframt að leitað verði leiða til að nýta Nauthólsvíkina og ylströndina betur í útinámi. Í samvinnu við tómstunda- og félagsmálafræðiskor verða mótaðar tillögur um óhefðbundið nám á þessu svæði, s.s. í raunvísindum og náttúrufræði sem byggi á upplifun, útivist og leik.