Mikil nýting á Frístundakorti ÍTR
Frístundakort ÍTR hefur heldur betur slegið í gegn hjá fjölskyldum í Reykjavík. Notkun kortsins hefur aukist jafnt og þétt frá árinu 2007 en foreldrar 6 – 18 ára barna og unglinga geta greitt allt að 25 þúsund krónur fyrir þátttöku barna sinna í skipulögðu starfi.
Í dag eiga um 220 félög aðild að Frístundakortinu og alls nýttu 86,2% barna á þessum aldri kortið til að greiða fyrir þátttöku árið 2012.
Búist er við að árið 2013 verði kortið nýtt enn frekar.
Það sem af er janúar hefur Reykjavíkurborg styrkt 4281 barn vegna þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfsemi með greiðslu upp á 96.5 milljónir til 92 félaga.