Eigendur gæti að hundum sínum á Geirsnefi

Framkvæmdir eru hafnar til að leggja nýja hjóla- og gönguleið yfir Elliðaárósa, þær kalla á töluverða umferð vinnuvéla og bíla um Geirsnef á næstu mánuðum en á þessu svæði er leyfilegt að sleppa hundum lausum. 

 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill af því tilefni biðja hundaeigendur um að sýna sérstaka aðgæslu í námunda við framkvæmdasvæðið sem er afmarkað að hluta til. Verklok eru áætluð í haust.

 

Byggðar verða tvær göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa, þær tengdar við stígakerfið og  lagður göngu- og hjólastígur milli þeirra yfir norðurenda Geirsnefs. Nýja leiðin verður aðskilin frá hundasvæðinu sem þar er með girðingu þvert yfir Geirsnefið og verða á henni tvö gönguhlið. Vegagerðin og Reykjavíkurborg standa sameignlega að þessari framkvæmd

 

Tengill:

 

desktopdefault.aspx/tabid-3545/436_read-33615.