Kjalnesingar óskuðu eftir sjósundsaðstöðu
Bætt aðstaða til sjósunds og fræðsla um náttúru eru meðal þeirra verkefna sem íbúar á Kjalarnesi völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra. Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.
Óskir íbúa á Kjalarnesi beindust einkum að bættu umhverfi með gróðursetningu og lagfæringu á gönguleiðum.
1. Akstursleið framan við sundlaug var endurbætt með aukið umferðaröryggi í huga.
2. Lýsing var bætt á gönguleiðum í Grundarhverfi.
3. Sjósundsaðstaða við Kléberg var útbúin með búningsaðstöðu.
4. Gengið var frá undirstöðum fyrir upplýsingaskilti.
5. Í sundlauginni voru eftirlitsmyndavélar settar upp og rennibraut lagfærð.
6. Gróðursett voru tré til skjólmyndunar milli Vallár- og Klébergslækja.
7. Berjarunnar voru gróðursettir á völdum stöðum í hverfinu.
Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa á Kjalarnesi var í fyrra um 9 milljónir króna og verður það óbreytt í ár. Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.
Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundað verður í Klébergsskóla á Kjalarnesi í dag, fimmtudaginn 24. janúar, kl. 20.